24.7.2010 | 21:49
Ólíkindatól!
skemmtilegt orð. lítið notað. margt skemmtilegt sem er lítið notað. að hitta fólk er mjög skemmtilegt. að hjálpa fólki er líka mjög skemmtilegt. að hjálpa fólki án þess að nokkur lifandi maður viti af því er fullkomið "skemmtilegt" enda rosalega lítið notað . ég er ótrúlega heppinn að eiga fólk að sem hefur hjálpað mér í gegnum lífið. ég hef hingað til talið mig vita í öllum tilfellum hvaðan hjálpin hefur borist en undanfarið hefur mér borist hjálp sem ég hef ekki hugmynd um hvaðan kom eða frá hverjum. tilfinningin að vita ekki hvaðan hjálpin kemur er fullkominn. þess vegna ætla ég að leggja það á mig að hjálpa einhverjum og segja aldrei frá því vegna þess að ég er viss um að sú tilfinning er jafn "fullkominn".
lifið heil, lengi!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.