! - Hausmynd

!

skoðun

af öllu því sem í boði er á netinu þá er ég pottþéttur á því að guðmundur í byrginu nakinn, er ekki á topp 10 yfir það fallegasta. Ekki á topp þúsund ef út í það er farið. ég sá guðmund fyrir nokkrum dögum síðan í fyrsta skipti, í sjónvarpi í viðtali hjá simma í kastljósi. þegar ég heyrði svo í morgun að hægt væri að sjá hann nakinn uppi í rúmi að leika sér þá hugsaði ég strax. langar mig að sjá kvikindið nakinn? nei bara alls ekki. og varla þarf ég að skoða þetta til að mynda mér skoðun á því hvort hann sé sekur um að misnota almanna fé, halda framhjá konunni sinni, eiga mök við vistmenn byrgisins eða eitthvað álíka. í mesta lagi til að hafa skoðun á því hvort hann sé ljótur eða ekki en í raun ekki einu sinn það því ég hef ekki hugmynd um hvort þetta sé hann eða ekki. en það er til dómskerfi sem er til þess gert að taka á svona málum. og það er til setning sem segir " saklaus þar til sekt er sönnuð". ok en það sem maður hefur séð af honum og heyrt frá honum þá lítur það svo sannarlega út fyrir að vera sekur. "ekki er allt sem sýnist" stendur einhversstaðar. ég vona fyrst og fremst að í ljós komi að þetta sé bundið við sem allra fæsta einstaklinga vegna þess að auðvitað hlýtur það að vera það sem skiptir máli í þessu. að sem fæstir hafi meiðst.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Sæmundsdóttir

 Þar segir þú satt, vonandi er þetta bundið við sem færsta. Maður hefur kanski verið of bundin við að bölva Guðmundi og hans gjörðum. Ég held að þetta myndband nái ekki topp túsund, en hann ætti að kanna með vinnu við þetta í USA.

Sigrún Sæmundsdóttir, 18.1.2007 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband